Flokkur: Blikatíðindi
06.02.2010 12:07
Besta barnapía í heimi
Vignir keypti sér tölvu á fimmtudaginn. Notaða PlayStation 2 slimline því Senu annað hvort þóknast ekki að bjóða viðskiptavinum sínum upp á það val að kaupa tölvu sem kostar innan við 30 þúsund eða tölvu sem kostar hátt í 80 þúsund. Eða þá að þeir eru að fara á hausinn. Sem trúlega er líklegra þar sem Mási eyddi klukkutíma í að reyna að ná símasambandi við þá án árangurs. Símsvarinn var virkur en ekkert annað.
En þökk sé Gamestöðinni tókst Vigni að eyða peningunum sínum.
Og því fékk Orri Már tölvu og sjónvarp inn í herbergið sitt. Gríðarlega ánægður. Eiginlega alveg í skýjunum. Eða ofar.
Í gærkvöldi þegar ég var að sofna kemur hann inn í herbergi og bað um vatn að drekka. Þetta var ekkert óvenjulegt þar sem hann kemur yfirleitt stundvíslega á miðnætti og sefur upp í til morguns. Það sem var óvenjulegt var að hann sagði: "Mamma, þegar ég er búin að drekka vatnið ætla ég að sofa í mínu rúmi."
"HA????"
"Ég ætla að sofa í mínu rúmi."
Það gerði hann líka.
Og það er meira....... Í morgun vaknaði ég ekki við neitt: "Mamma, komdu með mér fram. Mamma, komdu. Mamma, komdu strax!" Þess í stað vaknaði ég klukkan að verða níu við undarleg hljóð úr herberginu hans. Þá hafði hann vaknað..... lokað hurðinni inn til sín.... kveikt á tölvunni og farið í Simpson leikinn sinn.
Ef ég hefði vitað að allt sem þyrfti til að venja barnið á að sofa í sínu herbergi og vekja mig ekki á morgnanna væri tölva væri ég löngu búin að kaupa aðra PlayStation! Jafnvel þótt það væri PlayStation 3 á 80 þúsund krónur!!!

Skrifað af Ásta
30.08.2009 21:09
Og þá er skólinn byrjaður
Á öllum vígstöðvum. Í vinnunni hjá mér, hjá Vigni og litla barnið á heimilinu er byrjað í skóla. Orri Már mætti mánudaginn 24. sept. í viðtal til kennarans síns. Allt gekk mjög vel þar til kennarinn spurði hvað afi mömmu hans héti. Hann horfði á mig og spurði svo: "Hvaða afi er pabbi þinn???"
Erfitt fyrir aumingja barnið að henda reiður á öllum þessum öfum og ömmum......
Síðan mætti hann í skólann á miðvikudaginn. Ég gekk með þeim bræðrum og frændi slóst með í för. Hann virtist ekkert mjög skaddaður þegar ég náði í hann um þrjúleytið í frístundaheimilið og skólinn var enn í heilu lagi...... á fimmtudaginn spurði ég hann hvað hann hefði verið að gera í skólanum og hann sagði mæðulega: "Ég var bara að leika mér!!!" Á föstudaginn voru aftur á móti batteríin búin (rafhlöðurnar myndi hann segja) og mér var tilkynnt það af hálfum bekknum að hann Orri Már hefði næstum því sofnað....... já, það er erfitt að vera skóladrengur.

Það er þó ekki hægt að segja að helginni hafi verið eytt í sérstakri afslöppun. Á laugardaginn fór karlpeningurinn á heimilinu í Álftanessundlaugina á meðan ég sat heima og tók til. Hef það á tilfinningunni að það hafi verið svindlað á mér............
Drengirnir voru að föndra Pumabúninga...... Puma er sem sagt besta merkið..... sérstaklega þar sem Bouffon notar það (átrúnaðargoðið hans Vignis)...... að ógleymdum Usain Bolt......

Í dag létum við síðan féflétta okkur í fjölskyldu- og húsdýragarðinum og eyddum deginum í leiktækjum með um það bil milljón geitungum..... stuð..... í orðsins fyllstu merkingu!!

Geitungur með í lestinni.....

Og svo eina af stóra skóladrengnum sem er orðinn svo stór að ég má ekki lengur fylgja honum í skólann...... hann getur labbað alveg sjálfur!!!

11.07.2009 11:43
Orri Már
Sumarið 2005 byrjaði þetta litla barn í leikskóla.

Í gær lauk þetta litla barn síðan leikskólagöngu sinni og gerist grunnskólanemandi í ágúst. Það er aðeins tognað úr honum....

Í gær lauk þetta litla barn síðan leikskólagöngu sinni og gerist grunnskólanemandi í ágúst. Það er aðeins tognað úr honum....
Skrifað af Ásta
16.06.2009 17:23
Fullhreinskilinn drengur
-Geðveikt feit kona!
Móðirin lét sem hún heyrði þetta ekki og vonaðist til að konugreyið hefði heldur ekki heyrt þetta en þá gall við enn hærra:
-Mamma, sjáðu! GEÐVEIKT FEIT KONA!!!!
Ef þið áttið ykkur ekki á hver drengurinn er þá þekkið þið okkur ekki.........

18.05.2009 21:16
Yndislegur sumardagur
Vignir: - Mamma ætlarðu að fara út að sleikja sólina?
Ég: - Já.
Orri: - Mamma, ef þú sleikir sólina brennir þú þig á tungunni!!
Annars voru hjálpardekkin tekin af í dag. Við bjuggumst við miklu falli og gíruðum því litla dekurdýrið upp með alls kyns hlífum, olnbogahlífum, hnéhlífum og hjólagrifflum svo hann yrði ekki mjög rispaður og krambúleraður. Orri Már aftur móti settist bara á hjólið og hjólaði líkt og hann hefði hjólað án hjálpardekkja síðustu árin!!
Ótrúlega duglegur.
Myndir og myndbönd af hinum stórkostlega atburði koma á morgun, ég þarf nefnilega að ráða niðurlögum þvottafjallsins í stofunni fyrir miðnætti!

06.04.2009 15:20
Ég er brjáluð!!!
Í miðri kreppunni stelst bláfátækur námsmaðurinn út í búð og kaupir sér nýja myndavél!
Það er greinilegt að námið er að gera út af við heilann enda er ég að hugsa um að bera fyrir mig stundarbrjálæði þegar visareikningurinn kemur. Eða skella mér á námskeið hjá útrásarvíkingum og bankamönnum um það hvernig maður sleppur við að borga skuldirnar sínar. Mér skilst að það sé nýjasta trendið.
Við Orri fórum því í tveggja klukkutíma göngutúr í góða veðrinu í gær og mér sýnist að ég hafi smitað litla dýrið af ljósmyndabakteríunni. Hann hefur undanfarið tekið myndir á gömlu Sony vélina og skrásett heimilishaldið í Blikahólunum vandlega, hvað er í matinn, hvað er horft á í sjónvarpinu, hvað hann byggir úr kubbunum og svona hitt og þetta sem honum þykir merkilegt. Hann er án efa upprennandi snillingur.

15.03.2009 07:58
Það var komið að árlegri heimsókn slökkviliðsins...
...Blikahólana. Aftur var það eldamennska íbúanna sem kom öllu í bál og brand, í þetta sinn íbúðin við hliðina á okkur. Mási sýndi hetjutakta, braust inn í reykinn, slökkti eldinn og bjargaði heimiliskettinum. Slökkviliðið mætti með sína reykblásara og tryggði þar með að allir íbúar hússins sem ekki höfðu vaknað við reykskynjarana, væru örugglega vaknaði og komnir á fætur fyrir hálfátta.
Það var því ekkert sofið hér út....... frekar en fyrri daginn............
En sem betur fer fór allt vel, enginn slasaðist eða þaðan af verra. Dauða hluti er hægt að bæta.

21.02.2009 17:39
Hversdagsleg kraftaverk
Fyrr í vikunni skrifaði Orri Már blóm..... b-l-ó-m. Ég var við það að springa úr stolti!
Þetta er drengurinn sem fyrir ári síðan stamaði, greindur með slakan málþroska og máltjáningu, talaði aðeins í þriggja orða setningum og var á leiðinni í talþjálfun. Á einu ári hefur hann umturnast.... á góðan hátt....... þökk sé gríðarlega mikilli vinnu sem lögð hefur verið í hann....... og yndislegu starfsfólki á leikskólanum. Líklega verð ég að fara að safna til þess að geta veitt þeim þá kveðjugjöf sem þau eiga skilið.
Ég er þakklát fyrir allar þessar framfarir.... og ég er viss um að það er starfsfólk Hólabrekkuskóla líka enda minni líkur á að ég verði algjörlega óþolandi foreldri...........
Talandi um safnanir þá leyfðum við eldri syninum að safna sér fyrir Playstation 2 Guitar Hero World Tour.......... fyrir þá sem ekki eru inni í Playstation lingóinu þá er það hljómsveitarleikur með gítar, bassa, trommum og hljóðnema. Nú eyða hér deginum minnst fjórir drengir við að flytja lög á borð við Living on a Prayer og Hotel California......... í kommentunum hér fyrir neðan verður tekið á móti tilboðum í hljóðeingrun herbergis......... ég vil það ódýrt og skothelt!!!
Á sama stað er einnig óskað eftir tilboðum í litun á gráum hárum....... þeim hefur fjölgað síðustu daga............

28.01.2009 21:04
Frumburðurinn
11 ára í dag.

Alveg gullfallegur drengur þótt ég segi sjálf frá.......

Af því tilefni verður fjölskylduboð á laugardaginn kl. 7.......... lambalæri, bakaðar kartöflur og góðgæti.......

16.01.2009 18:43
Að eiga saman
Samkvæmt stjörnufræðinni eigum við Mási ekki saman. Hann er ljón og ég er fiskur. Ekki góð blanda, í rauninni eigum við löngu að vera hætt saman vegna sífelldra og alvarlegra rifrilda.
Í dag fékk ég síðan enn frekari staðfestingu á því að við eigum ekki saman!
Ég var að skoða kenningu Hollands um áhugasviðin.

Ég fell undir Artistic og Social..... Mási aftur á móti undir Conventional og Realistic. Andstæðir pólar. Eiga ekki saman! Ekki!
Er ekki best að slíta þessu bara strax? Öll fræði segja okkur að þetta sé vonlaust............

18.06.2008 11:07
Ís í Hveragerði
Við nenntum að sjálfsögðu ekki að hanga í bænum á 17. júní frekar en fyrridaginn. Skelltum okkur í Hveragerði, átum á okkur gat á hamborgurum og ís, ákváðum að flytja eftir að hafa séð leiksvæðið við grunnskólann en ef það gengur ekki förum við að minnsta kosti í útilegu til Hveragerðis í sumar.
Keyrðum síðan um Suðurlandið og nutum þess að vera í ró og friði frá stressi og látum miðbæjarins.

Ég veit ekki hvort þið vitið það en þessir drengir innbyrða án efa mesta magn allra barna af ís hér á Íslandi..... og Orri er í fyrsta sæti...... hann fékk þrjá ísa yfir daginn en samt var það fyrsta sem hann bað um þegar hann kom heim, ÍS!!!!

16.06.2008 18:56
Hætt við að fara í Skagafjörðinn í sumar!
Fyrr en ég er búin að fá mér riffil.
Og það verður sko ekki hringt á lögregluna fyrst........
Annars finnst mér þetta óttaleg vitleysa..... það er í lagi að ísbjörninn dúlli sér í æðarvarpinu og eyðileggi það, bókstaflega við hliðina á húsinu og haldi fjölskyldunni í gíslingu þar til hægt að er að finna leiðir til þess að kannski bjarga honum.
Hvað ef Karen hefði nú ekki tekið strax eftir að þetta væri ísbjörn..... eða ísbjörninn hefði ekki verið búinn að éta sig saddan í æðarvarpinu?
Því miður.... er ekkert Vinstri græn núna og vil bara skjóta dýrið.
Ég bara verð að bæta við færsluna því þegar ég skoðaði bloggin tengd fréttum af ísbirninum sá eitt hvað fyndnasta sem ég hef lesið lengi. Það hljómar svona og undir skrifar Hjörtur:
Ég gat ekki annað en tárast.......

25.03.2008 22:00
Síðbúin páskakveðja
Páskarnir komu og fór á ofurhraða, hér var aðallega legið í leti og borðað páskaegg. Að morgni páskadags var farið í myndaratleik sem strákunum fannst svo skemmtilegur að þegar honum var lokið hefðu þeir helst viljað fela eggin aftur og leita aftur.
Þetta er myndin sem þeir fengu fyrst í hendurnar og áttu að átta sig á hvað þetta væri því þar var næsta vísbending...
Vignir áttaði sig nú ekki á þessu en Orri var fljótur að átta sig á að þetta væri þvottavélin..... þar fundu þeir næstu vísbendingu sem leiddi þá í ísskápinn..... og síðan leituðu þeir í öllum herbergjum þar til þeir fengu síðustu vísbendinguna.....
Þar sem þeir fundu páskaeggin sín í rúmfataskúffunni.
Um kvöldið var þetta allt sem eftir var af 3 páskaeggjum.......
Ég mæli hiklaust með mjólkurlausu, dökku páskaeggjunum frá Freyju, þau eru bara góð.
Að lokum: ef að konan sem var úti að labba í dag um leið og ég..... vinsamlegast taktu þetta til þín:
Bleikur kjóll!
Gráar joggingbuxur!
Gulir Crockskór!
NEI! NEI! NEI!
Bara vinsamleg tilmæli........
Skrifað af Ásta
28.02.2008 00:00
Einmitt þegar ég hélt að hlutirnir gætu ekki orðið verri!
Þá vaknaði Orri Már upp með hita í morgun!
Sem þýðir það að þeir eru báðir heima veikir!
Sem þýðir þverrandi geðheilsu foreldranna!
Sem þýðir enn meira vídeógláp!
Á ég ekki bara að kalla strax á barnaverndarnefnd........
Annars er Vignir að hressast..... því miður..... því að hann er orðinn frekar leiður á að vera inni og núna vill hann fá útrás með því að stríða bróðir sínum. Ég er ofsalega glöð yfir því. Orri líka....
Annars er ég versta móðir í heimi! Vignir þarf nefnilega að læra heima! Og vinna upp það sem hann er að missa af í skólanum. Ótrúlega ósanngjörn! Stundum á ég einnig erfitt með að trúa að hann sé jafnduglegur í skólanum og af er látið. Ekki þegar það tekur hann tvo klukkutíma að skrifa nákvæmlega 25 orð!
Tveir klukkutímar!
25 orð!
Ég læt ykkur um það að reikna hve langan tíma tók að skrifa hvert orð.......

Flettingar í dag: 82
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 97
Gestir í gær: 11
Samtals flettingar: 243780
Samtals gestir: 54552
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 22:35:39

Hvernig veistu að þessi björn sé hættulegur mönnum ?
Síðasti björninn sem var skotinn hér fyrir um það bil tveimur vikum var grænmetisæta.