Flokkur: Ásta þó!
21.06.2009 23:07
Skemmtanalífið
-það er hægt að vanga við Smells like a teen spirit.......
-það er mikilvægara að æfa hársveiflur og bakfettur en raddböndin.....
-hljómsveitin Daltón virðist ekki fræg í Breiðholtinu.....
-vissara er að festa hárlengingar vel fyrir kröftuga vangadansa....
-einhleypir karlar eru vissulega ekki einhleypir að ástæðulausu.......
-djammúthald mitt minnkar eftir því sem gráu hárunum fjölgar......
29.03.2009 23:00
Hvernig gleðja skal karlmenn
Í fyrsta lagi skal ekki tekið til á heimilinu í lengri tíma. Það er reyndar misjafnt eftir barnafjölda hvernig vikan dugar, á þessu heimili duga tveir dagar í draslarasafn en sé skortur á ryki mæli ég með því að leyfa börnunum að slást í hjónarúminu svona klukkutíma á dag. Safna skal dóti, drasli, óhreinum fötum og rykhnoðrum í öll horn íbúðarinnar..... ef það er ekki nóg þá bara á alla fleti íbúðarinnar. Síðan skal beðið til föstudags með að taka til, sérstaklega góðir eru föstudagar þegar maður á að vera að læra undir próf, en taka þá ofsalega vel til, skúra og þurrka af. Fyrir maximum áhrif má jafnvel litaraða sokkunum í sokkaskúffunni.
Þetta veldur mikilli gleði og hamingju í hjónabandinu og er með því besta hjónaráðið sem ég get boðið. Maður gæti jafnvel grætt morgunmat í rúmið frá þakklátum eiginmanni.
Voila!!!
09.03.2009 22:01
Skál' og syngja, Skagfirðingar
Nákvæmlega eins og í Miðgarði forðum daga.
Það var ógeðslega gaman........
22.03.2008 22:51
Bíllinn minn
Brunaði inn á Borðeyri, þar varið pústið soðið upp og ég hélt áfram til Reykjavíkur.
Held að ég myndi bara ekki vita hvað ég ætti af mér að gera ef ekkert kæmi upp á í þessum ferðalögum mínum......

Takk fyrir allar afmæliskveðjurnar, ég skammast mín fyrir hve léleg ég er að muna eftir afmælum annarra og er því gífurlega þakklát öllum ættingjum og vinum sem eru svona hugulsamir........ til hamingju með afmælið, þið öll sem ég hef gleymt að óska heilla.......

13.02.2008 17:57
Árshátíð ársins
Ég byrjaði náttúrulega á því að sjæna mig með því að fara í klippingu og litun, mér fannst snillarráð að hafa komist að sama dag og árshátíðin var enda þýddi það að ég yrði mjög smart um hárið. Þetta hélt ég alveg þangað til ég gekk út úr Hólagarði að sækja Orra á leikskólann. Eftir að hafa barist í hífandi roki og ausandi rigningu, vaðandi stjórfljót á göngustígnum og Orri hálffjúkandi á eftir mér haldandi dauðahaldi í höndina á honum, var ósköp lítið sem minnti á þokkafullu greiðsluna sem ég hafði fengið á hárgreiðslustofunni. Reyndar leit ég út eins og ég hefði aldrei á minni lífsfæddri ævi komið nálægt greiðu eða bursta.
Þannig að það þurfti að leggja í heilmikla vinnu til þess að líta þokkalega út og síðan dreif ég mig í partí upp í Grafarholt. Það var ansi hvasst á leiðinni og ég óskaði þess heitt og innilega að ég fengi bílastæði nálægt partíhúsinu. Það tókst næstum því, ég fékk bílastæði við enda raðhúsalengjunnar og prísaði mig nokkuð heppna.... að vísu blótaði ég kennaranum úr Foldaskóla sem kann ekki að taka tillit til annarra og lagði jeppanum sínum á ská í tvenn stæði!!! Ég vona að nemendur hans hafi verið erfiðir á mánudaginn....
Síðan fauk ég inn til Matthildar en þar sem ég er nú þrælvön ýmsum veðrum úr sveitinni í Skagafirði (sem manni var alltaf þrælað út í þar sem ákveðnir aðilar nátengdir mér sáum um skólaaksturinn..... og var yfirleitt eini rútubílstjórinn sem skilaði af sér börnunum í skólann!!!) og hafði búið mig vel, í gönguskóm og með sjal yfir hárinu, þannig að ég var nú bara þokkalega smart í partíinu.
En svo þurftum við að koma okkur í Gullhamra..... rúmlega 8..... þegar lægði náði hámarki! Ég bjó mig vel eins og áður, vafði sjalinu um hárið á mér og lagði af stað að bílnum.......... ég og Stína Run. Það var hvasst en við höfðum gott skjól af húsunum og ég hugsaði að þetta yrði nú ekkert mál þegar ég gekk fyrir hornið á raðhúsalengjunni og ætlaði að vippa mér inn í bíl. Ég fauk til baka..... bókstaflega FAUK TIL BAKA! Ég reyndi aftur og FAUK AFTUR TIL BAKA! Ég bjóst við að á endanum fyki ég yfir í Úlfarsfell en huggaði mig þó við það að Stína gargaði svo hátt að björgunarsveitin myndi renna á hljóðið.
Fyrir þriðju tilraunina bakkaði ég svo vel, tók síðan tilhlaup, jók hraðann jafnt og þétt og þegar að horninu koma var ég komin á svo mikla siglingu að 80 m/sek höfðu ekkert í mig og ég skellti mér inni í bíl. En í öllum látunum lét útlitið á sjá og andlitið sem mætti mér í bílspeglinum var ekki frýnilegt.
Farþegar mínir komust einnig inn við illan leik og voru svo fegnir að meira að segja Matthildur með alla sína 180 cm. sætti sig við barnastólinn sem bílsæti.......
Ég hef persónulega aldrei verið hrifin af handblásurum á almenningsklósettum, nenni aldrei að nota þá en síðastliðinn föstudag fannst mér handblásarar frábærasta uppfinning EVER! Ég þurrkaði á mér hárið krjúpandi á hnjánum og síðan þurrkaði ég fötin mín líka og komst að því að ég er ótrúlega liðug!
En það sem eftir var kvöldsins var gott, maturinn frábær, félagsskapurinn enn betri, Sniglabandið gott en gestasöngvari söng aðeins of lengi........ 35 vögguvísur í röð á föstudagskvöldi er einum of og ég forðaði mér heim áður en ég sofnaði fram á borðið..........
07.02.2008 21:13
Játning
Á sprengjudag var baunasúpa í matinn í skólanum. Ég fékk mér 2 diska.....
Um kvöldið eldaði ég saltkjöt og baunir. Og fékk mér 2 diska.....
Daginn eftir var starfsdagur í skólanum og í matinn var........ afgangurinn af baunasúpunni. Ég passaði mig þó og fékk mér bara einu sinni.....
Um kvöldið vorum við líka með afganginn af saltkjötinu í matinn. Ég sýndi enn ótrúlega sjálfsstjórn og fékk mér bara einu sinni á diskinn.... eða ókey, einn og hálfan disk.....
En það eru nú örugglega margir sem hafa gert þetta sama..... borðað afgangana daginn eftir....... hins vegar þegar ég kom heim í dag og sá að enn var eftir einn biti og smá súpa gat ég ekki hamið mig....... miðdegiskaffið hjá mér var því saltkjöt og baunir........
Núna sit ég hérna alein og blogga...... aðrir fjölskyldumeðlimir halda sig í öruggri fjarlægð.......
23.01.2008 23:04
Martröð kennarans
Þá er annað hvort að henda tölvunni út um gluggann eða fara heim og hugga sig með súkkulaði........
18.11.2007 21:35
Laaaaaaaaaaaangt blogg!
Það er þá ákveðið, ég mun ekki fara til Péturs Tyrfingssonar sálfræðings í meðferð! Fann þennan pistil á eyjunni og fannst margt athugavert við hann. Honum er greinilega ansi illa við jafnréttisbaráttuna og telur drengi hafa farið halloka vegna hennar. Vandamál drengja séu ekki rædd og eingöngu sé horft á neikvæðar hliðar drengja. Sem móðir tveggja drenga verð ég að koma mínum sjónarmiðum að.
Pistilinn er hægt að lesa og athugasemdir við hér. Pistillinn er þó hér í heild sinni ásamt þeim athugasemdum sem ég set við hann.
Af strákum
Enn ein könnunin frá Rannsókn og greiningu um krakkana okkar í útvarpinu. Heyrði þetta á leiðinni heim seint úr vinnunni í gær.
Fyrsta sem mér dettur í hug er hvernig stendur á því að það er alltaf sama fyrirtækið sem er að upplýsa okkur um börn og unglinga. Annað hvort er engin samkeppni eða hún er ekki frjáls... nema allt vitiborið fólk sem hefur áhuga á rannsóknum á börnum hefur á einhvern dularfullan hátt hafnað inní sama fyrirtækinu. Þetta á vel við matvöruverslun því á þeim markaði hlýtur einhver að vinna samkeppnina að lokum. En fyrirgefiði á meðan ég æli.... Í vísindum á þetta ekki að geta gerst (nema þá í lyfjarannsóknum sem einhver múltímlljónfyrirtæki stjórna). Markaður frjálsra hugmynda og þekkingaleitar á ekki að geta endað í einokun þó það sé eðli vörumarkaðar.
Var þetta óþarfleg neikvæðni? Ég held ekki. Manni er ætlað að hugsa eins og Heimdellingi og ég geri mér í hugarlund að sinnilag þeirra sé á þann hátt að þykja þetta grunsamlegt. Nei... ég bara segi sona.
Ég fæ alltaf svolítinn verk einhvers staðar þegar okkur er sagt frá þessum rannsóknum á ungviði í samfélaginu. Það er eins og þeir sem hafa innrætt okkur pólitíkskan og kórréttan hugsunarhátt um kynin geti ómögulega rúmað eftirfarandi staðreyndir:
- Strákum er síður hrósað en stelpum
Held að það geti verið margt til í þessu en þó held ég að stelpum sé frekar hrósað fyrir að vera stilltar og prúðar en strákum frekar fyrir að standa sig vel.
- Það er minna talað við stráka
Ég á ekki dóttur en ég get ekki annað sagt en að ég tali mikið við syni mína. Og þeir við mig. Reyndar stundum svo mikið að mér verður illt í eyrunum. Þessu held ég að sé ekki hægt að klína á jafnréttisbaráttu því að þetta verða foreldrar að laga. Strákum finnst skemmtilegra í tölvuleikjum en stelpum, flestir ef ekki allir eru með leikjatölvur inn í herbergi hjá sér og spila þá þar lokaðir inni á meðan að stelpur sitja kannski frekar yfir sameiginlega sjónvarpinu á heimilinu og horfa á með foreldrum/móður. Einnig held ég að stelpur séu frekar látnar vinna heimilisstörfin og myndast þá gott svigrúm til spjalls um daginn og veginn sem strákar eiga þá ekki..... því þeir sitja tölvunni á bak við lokaðar dyr. Spurning um að setja strangari reglur hvað varðar tölvunotkun og virkja strákana frekar í heimilisstörfunum.
- Fleiri strákar eiga í námserfiðleikum á grunnskólaaldri
Þetta tel ég haldast í hendur við að fleiri strákar greinast með athyglisbrest og ofvirkni. Sterk tengsl eru á milli lestrarhömlunar og athyglisbrests og spurning hvort er orsök og hvort er afleiðing. Þessi aukning á greiningum drengja tel ég geta verið afleiðing margra hluta. Skólakerfið er farið að líta öðru vísi á hlutina og í stað þess að stimpla börn óþekk eru þau send í greiningu til þess að athuga hver vandi þeirra er. Greiningatæki eru orðin fullkomnari og allt samfélagið er meðvitaðra. Annað sem ég persónulega og án þess að hafa nokkuð annað fyrir mér en "gut instinct" er breyting á samfélaginu. Íslenskt samfélagið er mjög stressað, lítill tími til reiðu og börn ganga mikið sjálfala því að báðir foreldrar vinna úti. Þetta tel ég að strákar þoli mjög illa. Þeir eru ekki eins sveigjanlegir og stelpur, þeir þurfa meiri ramma og meira aðhald frá foreldri. Þar sem þeir fá það ekki reyna þeir á ýtrustu mörk samfélagsins og drengir sem eru veikir fyrir þola það ekki. Þetta tel ég vera ástæðu fjölgunar ofvirkni drengja. Vissulega eru alltaf einhverjir sem eru það veikir að þrátt fyrir skýr mörk og góðan ramma utan um hegðun þurfa þeir lyf og aðstoð. Hins vegar er það mín reynsla, bæði sem foreldri og kennari að með skýrum reglum, afdráttarlausum viðurlögum og góðum ramma er hægt að vinna með ofvirk börn. Ef foreldrar hefðu síðan tíma og ráð til þess að annað þeirra gæti alltaf verið heima og tekið á móti ofvirka barninu og veitt sömu öryggistilfinninguna og aðhaldið myndi margt lagast. En á meðan okkar samfélag er eins og það er mun þetta ekki lagast og það er ekki eingöngu hægt að kenna skólanum um...... né jafnréttisbaráttunni..... ég meina í alvöru?
- Eitt er að byrja í skóla og annað að falla fyrir borð. Í framhaldsskólum eru það strákar sem detta út úr skóla.
Ein ástæðan held ég að geti verið einmitt það að strákar eru ekki jafnsveigjanlegir og stelpur. Þegar námið harðnar er auðveldara að hætta og fara að vinna. Síðan er það efnishyggjan sem er svo heit hér á landi. Af hverju að stunda nám þegar mörgum strákum reynist það svo auðvelt að fá vel launaða vinnu á menntunar, þeir þurfa bara að leggja hart að sér og þá geta þeir leyft sér að kaupa bíl, græjur og hvað það sem þá langar. Held það sé nefnilega meiri pressa meðal stráka að eignast stóra dýra hluti s.s. bíla en meðal stelpna.
- Það eru ungir karlmenn fyrst og fremst sem verða fyrir vinnuslysum
Ja, það er trúlega vegna þess að þeir eru ríkjandi í iðnaðarstéttunum! Og sjómannastéttinni! Þar sem alvarlegustu vinnuslysin verða. Kannski ætti Pétur Tyrfingsson einmitt að fagna jafnréttisbaráttunni ef hún verður til þess að konum fjölgar í þessum stéttum...... þá munu þær verða jafnoft fyrir slysum og ungir karlmenn! Lausnin er náttúrulega ekki að auka öryggi á vinnustöðum og gera þessu ungu karlmönnum grein fyrir að þeir eru ekki ódauðlegir...... stundum er lausnin einfaldlega að setja upp öryggishjálm...... og trúið mér, eigandi eiginmann fyrir iðnaðarmann, sú uppástunga hefur undanfarinn 12 ár fallið í grýttan jarðveg.
- Sjálfsmorð eru fyrst og fremst vandamál ungra karlmanna
Því miður fyrir Pétur, þá er þetta algjörlega kynbundið vandamál hvort sem hann vill viðurkenna það ekki. Mér finnst þó sem sálfræðingur verði hann að viðurkenna það. Strákar tala ekki um vandamál sín, sérstaklega ekki unglingsstrákar eða ungir karlmenn. Ef ungur karlmaður myndi setjast niður með besta vini sínum og segja: "veistu mér líður eitthvað svo illa í sálinni, ég græt mig í svefn á hverju kvöldi, helst langar mig til að deyja...." Hvað haldið þið að vinurinn myndi segja? Auk þess sem búið er að skilyrða karlmenn svo í uppeldinu..... af feðrum sínum sérstaklega að þeir vilja helst ekki setjast niður og létta á sál sinni. Þetta er staðreynd!- Þeir sem deyja ungir eru einkum karlmenn
Vísa í fyrri svör hvað varðar störf og sjálfsmorð auk þess sem að strákar/karlmenn eru almennt ógætilegri en stelpur/konur. Ef við bara lítum á tölur um hraðakstur og slys þá blasa þessar staðreyndir við.
Vandamál stelpna og ungra kvenna sem eiga sér hávaðasama fulltrúa í umræðunni? Jú, - konur hafa ekki eins há laun og það vantar konur í hóp gróðapunga með ofurlaun.
Finnst þetta svo mikil einföldun á jafnréttisumræðunni að þetta er varla svaravert! FÓLK sem vinnur að jafnréttisbaráttunni einblínir ekki á einn ákveðinn þátt. Það horfir á margar þætti. Ég tel það það sé jafnréttisbaráttunni að þakka að í dag fá m.a. karlmenn fæðingarorlof, það þykir ekki lengur undarlegt að feður sinni börnum sínum í veikindum þeirra og það eru ekki bara furðulegir og latir karlmenn sem vilja vera heimavinnandi! Og það hefur komið í ljós að karlmönnum er líka nauðgað! Ég er án efa að gleyma mörgu, þetta er það sem mér dettur í augnablikinu.
Konurnar okkar sem stjórna umræðu um jafnréttismál, uppeldi, tilfinningar og allt þetta mjúka eru mjög uppteknar af þessu. Oftar en einu sinni hef ég heyrt mæðulega umræðu um að við hljótum að ala stelpurnar okkar eitthvað vitlaust upp fyrst þær skila sér ekki inn á fundi gróðapunganna og í nefndir Alþingis.
Sjá fyrra svar um mikla einföldun og þröngt sjónarmið.....
En hverjum heilvita manni með samviskukirtilinn á réttum stað er ekki skítsama um þessa umræðu þegar við megum öll vita að vandamálin sem virðast ráða lífi og dauða herja fyrst og fremst á drengina okkar?
Ja, hérna..... ég er hreinlega orðlaus..... svona álíka orðlaus og þegar maður sagði við mig...... "þannig er það bara í dýraríkinu, þeir sterkustu lifa af"....... ég fatta ekki hvað hann er að fara með þessu og einhvern veginn hef ég tilfinningunni að hann hafi það ekki sjálfur...... og án þess að vera ísköld tík þá er ekki eins og 100 ungir karlmenn látist í hverri viku...... en það fékk ég á tilfinninguna eftir að hafa lesið þessa setningu.....
Má ég ekki segja þetta af því ég er sálfræðingur og formaður Sálfræðingafélagsins? Hver má þá benda á þessa hræðilegu slagsíðu í allri umræðu um uppeldi og jafnrétti kynjanna?
Ég hefði viljað að sálfræðingur og formaður Sálfræðingafélagsins myndi sýna aðeins meiri huglægni í hugsun og meiri tillitssemi í orðavali og skoðunum.....
Nú vill svo til að öll mín börn eru strákar og ég er strákur og öll mín systkin eru strákar og pabbi minn var strákur... Ef ég sagði eitthvað vitlaust þá biðst ég vægðar og vona að mér sé fyrirgefið. Samt fer ég ekki ofan af því að á meðan meirihluti þeirra sem eiga í vanda í skóla undir 15 ára aldri er drengir, meirihluti þeirra sem er undir tvítugu og gefast upp í framhaldsskóla eru piltar og meirirhluti þeirra sem eru undir þrítugu og fyrirfara sjálfum sér eru ungir karlar.... þá held ég að umræða um vandamál ungviðis í þessu samfélagi ætti fyrst og fremst að vera karlmiðuð en ekki jafnréttismiðuð eða kvenmiðuð.
Og þar með kom hann úr felum...... umræða vandamála á að vera karlmiðuð...... ja, hún hefur nú verið það undanfarin þúsundir ára og lítið þróaðist samfélagið þá. Karlmenn áttu að vera sterkir, þögulir, duglegir, harðir af sér. Þeir sem grétu, voru viðkvæmir eða guð forð,i leyfðu konum að ráða einhverju, voru kellingar! Kannski vill Pétur fara aftur í þessa áttina, konur inn á heimilið, karlmenn út í vinnuna, strákar í skóla og þar komast þeir klárustu af en stelpur eru aldnar upp í að hugsa um heimilið....... Ég verð bara að segja að mér hefur einmitt sýnst að jafnréttisbaráttan hafi skilað heilmiklu fyrir karlmenn...... og það eru einmitt konur (enda meirihluti umönnunarstétta) sem hafa mestar áhyggjur af vanlíðan drengja í þjóðfélaginu!!!
Sleppum annars þessu sálfræðikjaftæði. Ég segi þetta sem faðir þriggja drengja.
Og ég er móðir tveggja drengja...... sleppum öllu þessu helvítis kjaftæði, kennum drengjum og stúlkum að tala saman, virða skoðanir hverra annarra og vinnum að jafnrétti kynjanna. Þá mun öllum líða betur....... og þurfa þá ekki sálfræðihjálp!Ég þekki ekki þennan mann og því miður hafa skrif hans orðið til þess að ég hef ekki hinn minnsta áhuga á að hitta hann. Eflaust eru margir sem kunna vel við og telja hann hinn besta kall........ ég er í það minnsta ekki sammála hans skoðunum.
20.10.2007 00:02
Þú skalt ekki stela.....
í það minnsta var mín gífurlega mikið freistað í kvöld að brjóta þetta boðorð. Gífurlega mikið!
Í tilefni þess að frumburðurinn lauk samræmdum prófum með stæl í dag var ákveðið að kaupa kvöldmatinn á Hamborgarabúllunni. Og þar sem litla dýrið er nú ekki alveg matsölustaðahæft, fór ég bara og keypti til að taka með heim....... take away með öðrum orðum.
Og þarna inni á Hamborgarbúllunni sá ég algjöran gullmola, og þurfti að leggja virkilega hart að mér að stinga honum ekki ofan í pokann. Virkilega hart! Stundum sér maður nefnilega hluti sem freista manns svo gífurlega að það lá við að ég byði um leyfi um að stela honum. Kunni samt ekki við það.
Og hluturinn sem freistaði mín?
Gullmoli!
Klassík!
Og ekki plakatið af Johnny Depp spilandi á píanó...... ég hefði þó ekkert á móti því að kippa honum með líka.....
Nei, gullmolinn freistandi var Gestgjafinn frá 1983!
Snilld! Bara snilld!!!
Ég fletti í gegnum blaðið og ég get svo svarið það að Solla á Grænum kosti fengi tilfelli yfir uppskriftunum!
Samlokur....... allar með einhvers konar majones salati, skinku, rækju eða hangikjöts..... og þá erum við að tala um alvöru majones, ekkert light drasl!
Försuð lambaslög! Það er að segja upprúlluð lambaslög með kjötfarsi inn í! Ég gjörsamlega heyri hálfa þjóðina krossa sig......... hinir sleikja sjálfsagt út um þótt þeir viðurkenni aldrei að steikt kjötfars sé í uppáhaldi!
Og svo það besta af öllu. Glútenmikið hveiti! Frábært í baksturinn þar sem glútenið bætir gæði hans! Ekkert spelt á þessum árum.......
Mæli með því að fólk skelli sér á bókasafnið og nái sér í gömul Gestgjafablöð....
16.09.2007 23:26
Hrakfallabálkurinn ég!
Hann byrjaði svo sem óskaplega vel. Ég hafði mælt mér mót við tvær samstarfskonur mínar á Þingvöllum þar sem við ætluðum að taka myndir af haustlitunum.
Í fyrsta lagi var nú svo mikið hífandi rok að það lá við að myndirnar yrðu allar hreyfðar eingöngu vegna þess að við gátum ekki staðið kyrrar...... og þrífæturnir fuku allir. En svo þegar í Almannagjá var komið var veðrið skaplegt..... og við byrjuðum að leika okkur.
Ég sá afskaplega falleg, rauð laufblöð hjá klettum og þar sem rauður er haustlitur ákvað ég að taka mynd...... hefði betur sleppt því vegna þess að í fyrsta skrefinu sem tekið var í áttina á laufunum small eitthvað í fætinum á mér.
Og ég gat ekki stigið í fótinn!
Og var staðsett ansi ofarlega í Almannagjá!
Og bíllinn niðri á tjaldstæði!
En ég komst það að lokum, mætti slatta að túristum sem allir litu hálfsposkir á mig þar sem ég haltraði þarna um á lúsarhraða og hafa örugglega tekið upp myndavélarnar þegar framhjá mér var komið enda gott myndefni þar á ferð......
Að sjálfsögðu gat ég ekki keyrt þar sem ég gat varla stigið í fótinn og því varð að keyra mig í bæinn...... eða réttara sagt það ÁTTI að keyra mig í bæinn.
Bíllinn minn var bara of húsbóndahollur og gerði uppreisn gagnvart nýjum bílstjóra! Ætlaði sko ekki að leyfa einhverju stelpuskjátu að skipta um gíra í sér, fyrr skyldi hann dauður liggja!
Það endaði því þannig að ég keyrði í bæinn, skiptandi um gír með jarkanum og urðum við síðan að leita læknishjálpar, ég og bílinn.
Kom þá í ljós að við erum bæði orðin gömum og slitin og því ýmislegt farið að brotna og gefa sig. Einhver hulsa kringum gírstöngina gaf sig í bílnum en vöðvinn í kálfanum hjá mér. Sit ég því núna, vel og rækilega dópuð, með hækjur mér við hlið en bíllinn bíður frekari læknisaðstoðar í bílskúrnum hjá tengdapabba.
Hugsa að sunnudagurinn 16. september 2007 verði mér minnisstæður í framtíðinni........

Húsráð dagsins: Alltaf að muna eftir að raka á þér lappirnar, þú veist aldrei hvenær þú þarft á læknishjálp að halda!
20.08.2007 23:58
Mánudagur!
Skólainnkaup.....
Þroskaleikir með Orra......
Geðillskukast út í Kennarasambandið fyrir að láta ekki í sér heyra eins og ástandið er í kennaramálunum núna.
Normal mánudagur..........
12.07.2007 23:26
Orðabók móður
Kynköld: kona sem man enn mjög vel eftir fæðingu barns síns.
Eftirréttur: nauðsynlegt þegar barnið þitt neitar að borða stappaðar gulrætur og broccoli.
Fullt nafn: það sem þú kallar barnið þitt þegar þú skammar það.
Amma og afi: fólkið sem finnst barnið þitt fullkomið þrátt fyrir að þú kunnir alls ekki að ala það upp.
Sjálfstæði: það sem við viljum að börnin okkar verði... svo fremi sem þau geri það sem við viljum!
Áááái: fyrsta orðið sem börn læra.... sem eiga eldri systkini.
Pollur: vatn sem dregur eingöngu að sér börn í þurrum skóm.
Montin: hæfileikarík börn, önnur en þín eigin.
En, ég gerði það ekki: orð sem börnin þín nota mjög oft.
Asni: þjónninn á Pizza Hut sem sagði börnunum þínum frá sjálfsafgreiðslunni á ísnum!
10.04.2007 19:01
Einhent blogg....
Það gekk náttúrulega á ýmsu eins og okkar er von og vísa m.a. urðum við svo rennandi blaut að þegar við komum heim var hægt að taka fötin okkar og vinda þau.
Síðan sá ég fjölskyldum í bíltúrum fyrir skemmtiatriðum þegar ég flaug á hausinn..... af hjólinu..... við gangbraut! Einhvern veginn virðist svona lagað bara koma fyrir mig!!! Síðan virðist ég einhvern veginn hafa misþyrmt þumalfingri í leiðinni og því geri ég flest allt með einni hendi núna.... til dæmis að blogga. Það er ótrúlega hvað maður notar þumalfingurinn mikið og verður alveg bakk þegar maður missir notin af honum!
Síðan vældi ég svo mikið hjá lækninum að hann þorir ekki annað en að senda mig í röntgen á morgun..... en trúlega er þetta bara væl í mér.......
26.02.2007 21:53
Klerkar til sölu
Mér leið mun betur með það....
Í dag var ég síðan að lesa Nóatúnsbæklinginn sá ég mér til mikillar skelfingar að þeir voru með "Tippagúllas" á tilboði!!!
Sem betur fer las ég þetta yfir aftur og sá mér til mikillar gleði að gúllasið á tilboðinu var reyndar "Trippagúllas" en ekki "Tippagúllas"!!!
Bon appetit
- 1
- 2
